Sjaldgæf mynd úr höfuðstöðvum Tískulöggunnar. Detective Amazeen þerrar hörfræjagraut af hökunni eftir að hafa handtekið Sölva Tryggvason.
Áramótaannáll HVH 2012 er aðeins ein mynd.
“Mannbjörg”
eftir Hrafn Jónsson
Við biðjum vegfarendur í miðbænum að vara sig. Það var að myndast hipster svarthol á Skúlagötunni.
Það verður kannski soldið lítið um færslur hér næstu dagana þar sem við erum fallnir í dauðadá af hipsterisma. Kveðjur úr öndunarvélinni.
Fólk er í óða önn að setja saman dressið fyrir stóra kvöldið 28. desember.
http://www.facebook.com/events/259335594193467/?fref=ts
Það tilkynnist hér með að Bó er kominn í the Rap Game. Hann verður með gesta vers á The Prophecy pt. 2 og svo er það mixtape í vor. Yologestir Björgvins 2013 featuring Gísli Pálmi.
Krakkar - EKKI hleypa Lalla Ljósastaur í eftirpartýið ykkar! Hann verður alltaf heví þrotaður, er með kjaft og reykir inni. Hann skeit einu sinni í rúmið hjá frænda okkar. Algjör asshole.
Von•brigða•pulsa
Nafnorð - Pylsa með extra hráum lauk og remúlaði sem borðuð er um morgunbil þegar engin von er lengur á að ná sér í rekkjunaut.
Sjá einnig Uppgjafarpulsa.
Þessi var bara að drepa alla gleði með því að kjamsa á vonbrigðapulsunni sinni á dansgólfinu á KB eftir að Magga Maack neitaði honum um láréttan magadans. Uppgjafar- og tómatsósufnykurinn af honum var þvílíkur að öll klof á staðnum skelltust aftur einsog músagildrur með auðheyranlegum hvell.
Ofurhönnuðurinn Maggi Hregg tekur hér rap game fatlafól og rúllar um gólf í hjólastólatískunni. Nú skulu allir líta út einsog moldrík gamalmenni á hjólastólarúnti um garðinn sinn.
Flísteppið fæst í Geysi og er á 79.900.